Stella Bára Eggertsdóttir - meðferðar dáleiðari

Ég hjálpa fólki sem hefur orðið fyrir áföllum í æsku að losa um hamlandi tilfinningar.

Ég hjálpa fólki sem hefur orðið fyrir áföllum eða hefur búið við erfiðar aðstæður í æsku að losa um gamlar hamlandi tilfinningar sem aftra þeim í að ná árangri, ró og vellíðan á fullorðinnsárum. 

Með RTT Dáleiðslumeðferð er hægt að finna grunn vandans. Skilningur á vandanum gefur svo frelsi til að létta á tilfinningum eins og kvíða, depurð, litlu sjálfstrausti og svefnvanda.


Þarft þú að losna við hömlur? 

Hvað er það sem í rauninni heldur aftur af þér?

Veistu að fortíðin eða frum bernskan gæti verið ástæða þess að þú ert að upplifa að eitthvað haldi aftur af þér?

Dáleiðsla gæti losað um þessar hömlur


Ert þú að glíma við áföll æsku þinnar?

Dáleiðsla er góð leið til að losa um þær tilfinningar sem sitja eftir vegna gamalla áfalla. 

Ég hef hjálpað mörg hundruð manns við ýmisskonar vanda sem sprottið hefur úr fortíðinni með góðum árangri


Dáleiðsla er eðlilegt ástand hugar þíns til að vinna úr upplýsingum eða upplifunum sem þú hefur orðið fyrir. 

Verkefni undirmeðvitundarinnar er alltaf að færa þig í áttina að vellíðan og burtu frá vanlíðan, en hún vinnur þvímiður oft út frá gömlum úreltum upplýsingum eða upplifunum sem láta þig jafnvel bregðast við atvikum á gamlan barnalegan hátt. 

Þessu gæti verið hægt breyta í með Dáleiðslumeðferð


Er lofthræðsla og eða flughræðsla að halda aftur af þér? 

Dáleiðsla gæti verið lausnin.


Ertu föst/fastur í fortíðinni?

Ertu með kvíða?

Ertu með depurð?

Reiðist þú auðveldlega?

Ertu með lítið sjálfstraust?

Næðu ekki að sleppa sorginni?

Þetta eru allt tilfinningar sem gætu hafa hreiðrað um sig innra með þér áður en þú varst 7 ára. 

Hvað manstu mikið fyrir 7 ára aldur?

Í dáleiðslu getum við munað „allt“ sem hefur valdið okkar tilfinningum góðum sem slæmum.

Hvenær lærðir þú að bregðast við með þínum tilfinningum? 

Ef þú manst það ekki, þá gæti Dáleiðslumeðferð verið lausnin fyrir þig til að losa um þessar gömlu tilfinningar fortíðarinnar.


Stendur þú í vegi fyrir sjálfum/sjálfri þér? 

Nærðu ekki þeim árangri sem þú veist að þú ættir að geta náð?

RTT Dáleiðsla gæti hjálpað þér að losa um höft fortíðarinnar og koma þér áfram í að taka skrefin sem þú þarft til að stíga næsta skref í áttina að velgengni


Það sem skiptir máli er að setja súrefnisgrímuna fyrst á sig til að geta hjálpað öðrum. 

Dáleiðslumeðferð gæti hjálpað þér að gera þig sterkari þannig að öðrum í kringum þig líði betur vegna þess að þú gætir gefið meira af þér.